blessaður kollegi
24.09.2007 17:07:26 / glisa

bleess

HÆTT!!

:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 12:05:38 / glisa

og ofnarnir !! á langa ganginum, það er alltaf eitthvað bank í þeim!! ég er alveg að verða vitlaus á þessu!!!

AAALVEG!!!

 hehe hrikalega fyndið atriði!! ef þið viljið kitla hláturstaugarnar þá verðið þið bara að fara á www.youtube.com og skrifa fóstbræður, Indriði og horfá þetta! þetta er viðurstyggilega fyndið! og líka leigubílstjóru dauðans!! ég elska það.. er alltaf að leika það fyrir Sigrúnu.. hún neyðist til að umgangast mig og hlusta á sama brandarann dag eftir dag ! :lol:

en já.. ég ætla ekki alveg að missa mig í gleðinni!

ætlaði bara koma með svona öflugt -Comeback-..eða þar að segja ef ég fæ einhver viðbrögð ..hehe.. ég hugsa að ég nenni ekki að hafa bloggsíðu aðeins fyrir mig sjálfa! en hver veit ! ;)

en í fréttum er þetta helst:

ég er flutt suður á bóg .. sem er gaman! komin í fb (fjölbraut í breiðholti) og er á félagsfræðibraut þar..ég hef reyndar illan bifur á þessari félagsfræðibraut! en samt gaman i skólanum.. er t.d. að læra spænsku..draumur i dós ! :)

svoo já.. var ég á Spáni um daginn eða í ágúst.. Alltaf gaman þar! enda næstum því mitt heimaland ;) ég er þeirrar skoðunar að ég hafi fæðst í röngu landi! hehe.. liklegt. en já það var alveg frábært!! fór með mömmu og Birtu..svona prinsessu ferð ! ;) vorum í viku.. á suður spán, s.s. costa del sol, torremolinos! og fórum til Gíbraltar einn dag! sem er bresk nýlenda og maður sér yfir til afríku þaðan.. allir tala ensku þar sem fyrsta mál .. skoðuðum þar st.michaels caves og fleira.. sáum villta apa! ekkert smá sætir! langar í apa.. svo sáum við flotta mosku.. ég hefði viljað sjá búddhahofið og garðinn sem Jhonn Lennon og Yoko Ono giftu sig í.. en það verður að bíða betri tíma! :) en þetta var allavega frábær ferð.. fyrir utan lsmávegis ífsháska sem ég lenti í .. ég og mamma vorum að synda í sjónum og fara í öldurnar (það er geðveikt gaman) og öldurnar þarna voru hrikalega stórar.. nema að við fórum aðeins of langt út og ég náði ekki að synda til baka það voru svo sterkar undiröldur og toguðu mig alltaf lengra þangað til ég var orðin svo hrædd því ég var farin að gleypa sjó og eitthvað og byrjuð að öskra á hjálp þá kemur svona baywatch gaur hlaupandi út í með kút og bjargar mér ! sem er heppni.. það hefði ekki mátt líða mikið meiri tími.. allt einvherjum surferum að þakka sem fóru og sóttu hjálp!

en ég er á lífi ! ;) þetta er dramatísk lífsháska saga.. efni í góða bók fyrir rauðu seríuna eða eitthvað!

en já.. þetta fer að verða helvíti langt blogg..  ég þarf að fara fylgjast með i fjölmiðlafræðinni8|

en endilega ef þið sjáið ykkur fært að kvitta þá væri það frábært!

set svo inn myndir frá spáni ef ég sé fram á langlífi hjá þessari síðu !

adios amigos! hasta luega ! ;)

útsýnið af svölunum okkar

alltaf þarna

krúttin

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 00:45:48 / glisa

wowawiwa

:D

ætlaði bara láta vita af mér, ég er við hestaheilsu og á góðri lífsleið ! ;) er bara i sumarfríi .. skoðar einver síðuna mína ennþá? hehe

jæja þetta er orðið allt of langt blogg i bili ætlaði bara að láta vita af nyrri myndasiðu, alltaf að bætast eitthvað inn , ekki vera hrædd við að sleppa af ykkur beislinu og skoða ;)

http://public.fotki.com/gudrunlisa-sumar07/

ég skal gefa ykkur sýnidæmi ef þið kærið ykkur um:lol:

skemmt󠰴9

rómantísk stund i eyvikurfjöru.

skemmt󠰵2

kátt á hjalla

skemmt󠰴6

klikkaðar píur! er þetta bein úr manni:)?

skemmt󠰷3

ógeðslega kúl.

skemmt󠱰4

Sigrún er agaleg fimleikagella ! ;)

rvk fer𠭡�007 018

kisulórur

rvk fer𠭡�007 029

eðalkvendið hún Linda Þuríður.

rvk fer𠭡�007 062

rvk fer𠭡�007 070

litla krúttrófan hún Sigrún

rvk fer𠭡�007 089

hahaha

rvk fer𠭡�007 099

falleg augu

rvk fer𠭡�007 114

rvk fer𠭡�007 123

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 18:45:59 / glisa

i hvaða stjörnumerki ert þú ?? ;)

Dýrahringurinn byrjar á Hrútnum og endar á Fiskunum. Byrjar illa og endar enn verr, fer úr kjafthætti og frekju yfir í væmni og óákveðni. Talandi um að fara úr öskunni í eldinn, alla leið frá hræðslulausri rollu yfir í rollulegan fisk!


Hrútsmerkið er rolla, ég meina karlkyns rolla þ.e. hrútur.  Rollulegheit eru aftur á móti ekki að finna í eðli Hrútsins (sjá frekar fiskinn).  Frekja er í eðli hrúta - ójá. Rollur segja Meeee.  Hrútar segja Meeeeeessaðu EKKI í mér.. og þú ættir að sleppa því... hornin geta meitt!
Allir hrútar eru ýtnir og halda að þeir viti allt betur en aðrir þeir ryðjast t.d. alltaf á undan í röð... tramp tramp, skvamp og ýt ýt, komast áfram, vera fyrstir - jebb, það er best að koma sér bara úr veginum.

Hrútsmerkið stjórnast af Mars, sem er guð af "Ég vinn, þú tapar"-heimspekinni.
 

 Nautið er karlkyns belja, ég meina þá auðvitað naut.  Beljur gefa manni mjólk, naut gefa manni ósköp fátt nema kannski blakandi nasavængi og hvöss "ég-rek-þau-í-gegnum-þig" horn. Nautin taka það sem þau vilja, þegar þau vilja það - matinn þinn, uppáhaldsstólinn þinn, tíma þinn, orku þína, peningana þína, dótið þitt - þau eiga þetta allt og mega allt. Nautin fljóta í gegnum lífið og éta allt sem á vegi þeirra verður. Sjálfselsku ónytjungar!

Nautsmerkið stjórnast af Venus sem er gyðja dóts og fjármuna.

 Tvíburarnir eru alltaf kleyfhuga geðsjúklingar.  Þeir geta ekki staðið kyrrir í eina mínútu og svo ljúga þeir stöðugt! Fljóthuga, óákveðnir, flöktandi og algerlega gersamlega klikkaðir. Ekki umgangast tvíbura til lengdar nema þú viljir verða endanlega geðveikur.
Hann elskar mig, hann elskar mig ekki, hún elskar mig, hún elskar mig ekki. Þú munt aldrei vita rétta svarið.

Tvíburamerkið stjórnast af Merkúr, guði geðsjúkra hugarleikja.


 Krabbamerkið er krabbi og það er ekkert flókið. Röfl, væl og kvartanir, endalaus fyrirtíðaspenna, hvort sem um er að ræða karlkrabba eða konudýr. Einstaka sinnum þegar tunglið er í réttri stöðu verður krabbinn öskrandi geðveikur. Það er eina hvíldin frá endalausu vælinu í honum. Ekkert er nógu gott, enginn hjálpar nógu mikið til, þú borðar ekki nógu vel, bla bla bla. Það er ekki hægt að þóknast þessu liði. Eina lausnin er að stinga þeim ofan í brennheitt vatn og sjóða þá í potti.

Krabbamerkið stjórnast af hinu spúkí tungli og hinum villtu, vanþakklátu sjávarföllum.


Ljón eru einfaldlega villidýr.  Ljón spranga um eins og herrar og ungfrúr, fullkomin, alveg eins og heimiliskötturinn þinn. Ég meina, líttu á köttinn þinn - til hvers eru kettir eiginlega? "Gefðu mér að borða. Sjáðu á mér hárið. Er ég ekki fullkomin? Klappaðu mér, elskaðu mig, leiktu við mig - farðu svo" - hvæs, klór.  Þau leika ekki listir, gera ekki það sem þú segir þeim og þau fara úr hárum. Það er allt og sumt.

Ljónsmerkinu er stjórnað af sólinni, herra Geisla sjálfum.


Meyjur eru ekki skemmtilegar.  Þær eru hreinar og fölskvalausar og mjöööög smámunasamar. Ekkert og enginn er nógu góður fyrir Meyju.  Þær stara á þig með borandi augnaráði og muna alla þína veikleika og galla.  Þær þykjast vera vinir þínir og hjálpa þér en allan tímann eru þær flissandi og hlæjandi bakvið þig.  Ekki treysta þeim í eina mínútu !

Meyjan stjórnast af Merkúr sem er guð ofurjafnvægis.

Fólk í voginni er alltaf allt úr jafnvægi.  Þær reyna og reyna að gera hlutina rétt en þeim tekst það aldrei.  Þær bæta smá öðru megin á vigtina, pínu hinum megin og aðeins í viðbót þangað til að þær eiga svo mikið af drasli að þær verða að halda bílskúrssölu eða leigja bás í Kolaportinu. En það gera þær auðvitað aldrei og þær vilja alltaf aðeins meira. Meiri ást, meiri skartgripi, meira gaman, meiri peninga, meiri fegurð, fleiri vini.....

Vogin stjórnast af Venus - sem er gyðja fegurðar sem á fullt af frábæru dóti.


Sporðdrekamerkið er vondur, stingandi sporðdreki, eitrað meindýr, undirförult og hættulegt sníkjudýr myrkursins. ALDREI treysta sporðdreka.  Sporðdrekar treysta þér ekki og þeir drepa þig án þess að hugsa sig um tvisvar.  Ef þú ferð vel með þá gætu þeir hugsanlega orðið þokkaleg gæludýr - ef þeir eru í búri auðvitað.  Sporðdrekinn læðist um allt óséður, kemst inn í hugsanir þínar og drauma og stelur þeim eins og þjófur um nótt. Ertu ekki hrædd(ur)?

Sporðdrekinn stjórnast af Plútó sem er guð kjarnorkusprengjunnar.


Bogmaðurinn er sjálfhverfur, trampandi og hneggjandi hestur.  Forðaðu þér úr veginum... af því flest allir Bogmenn eru með augnskjól svo að þeir geta ekki horft til hliðanna og sjá ekkert yfir hvað þeir eru að koma sér í.  Þeir segja líka alltaf nákvæmlega það versta sem hægt er að segja í stöðunni einsog; "hei-þú ert miklu ellilegri og feitari en síðast þegar ég sá þig" eða "hvað er þetta eiginlega þarna framan í þér?"  Þetta er ekki hreinskilni, þetta er bara grimmd.

Bogmannsmerkinu er stjórnað af Júpiter, hinum upphaflega "ég veit allt best"!


Steingeitin er geit.  Leiðinda frek steingeit.  Svona geit sem lítur út fyrir að vera gömul og svikul.  Þær hengslast upp fjallið já, já, með öllum þeim undirförlu og andstyggilegu trikkum sem þeim dettur í hug.  Svo eru þær með uppkrulluð horn, alveg eins og djöfullinn sjálfur.  Steingeitur nota og misnota þig á alla mögulega vegu til þess að fá sínu framgengt. Þeim er alveg sama þótt þær þurfi að éta sorp eða þótt það taki óralangan tíma, þeir skulu bara ná sínu fram.

Steingeitin stjórnast af Satúrnusi, hinni eilífu föðurímynd.


Vatnsberinn er villtur vatnastrákur eða stelpa.  Þetta er fullkomlega ábyrgðarlaust fólk.  Þeir hafa einungis eina reglu; ef það er gott, þá gera þeir það.  Vatnsberar eru alltaf með flókin og greindarleg plön í gangi sem þeir síðan hlaupa frá án þess að hugsa sig um tvisvar.  Þeir segja þér eitt og láta síðan einhverja fáránlega hugmynd teyma þá alveg til Timbúktú.  Ekki einu sinni láta þér detta í hug að reyna að fylgja Vatnsbera eftir, þetta er blautt, sleipt og geðveikt lið.

Vatnsberinn stjórnast af Úranus, guði eldinga, rafmagns og hjólreiðamanna.


Fiskamerkið ... hmm, fiskur?  Eða, eiginlega tveir fiskar að synda í gagnstæða átt- alltaf týndir.  Fólk í fiskamerkinu lifir í stöðugum ótta vegna þess þeir vita að hættulegar fiskaætur leynast alls staðar.... fylgist bara með því hvernig þeir skjótast um, snarruglaðir og illa fyrirkallaðir.  Fiskar geta ekki verið á beinu brautinni í tvær sekúndur og þú þarft ekki annað en að henda út gómsætri beitu þá eru Fiskarnir mættir á sekúndubroti, tilbúnir að bíta á agnið. Auðveldir þessir Fiskar nefnilega (eiginlega eins og rollur).

Fiskarnir stjórnast af Neptúnusi, guði friðar, ástar og ruglings.


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 12:56:14 / glisa

Attensjíon plís!!!!

Veit einhver um einhvern sem er að fara suður um næstu helgi???

laaaangar svo að hitta ömmu, sævar og sindra hef ekki hitt þau í 3 ár:cry::frown: og ég tími ekki að fljúga..

endó látið vita.. það væri frábært.

Guðrún Lísa


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 15:47:55 / glisa

þetta er enginn venjulegur brauðkassi!!!

þessi þáttur á skjá einum!! vörutorg! er að gera mig GEÐVEIKA!! ég þoli ekki þennan gæja sem er að kynna þetta.. alltaf að segja það sama aftur og aftur.. reyna heilaþvo fólk..ætti að kæra þetta fyrir áróður.. þetta er nánast allann fokking sólahringinn sama aftur og aftur! hehe.. ég hlæ samt alltaf jafn mikið þegar hann er að kynna inniskóna!!  "inniskórnir sem muna eftir þér"! haha... og auðvitað þessi einstaki brauðkassi.. frekar fyndið.. hafiði ekki horft á þetta? finnst ykkur þetta kannski bara hin fínasta skemmtun??;) hehe.

æji splittar ekki.. ætlaði bara að röfla um eitthvað.. margt sem liggur mér á hjarta ;) eins og t.d. þetta mikilvæga málefni! ;) haha

já..vindum okkar kvæði í kross!!

ég hlakka svo til sumarsins.. eg er við það að andast.. hlakka til að byrja vinna..fara í útilegur,fjöruferðir,bústaðaferðir,suðurferðir og fleira:D stelpur eigum við ekki að reyna vera duglegar við þetta í sumar?? svo er stefnan tekin suður næsta haust í IR . . .að læra ljósmyndun. er náttúrulega bara spennt fyrir því og svona. alltaf gott að breyta til.. en alltaf lika dálítið erfitt..hef samt bara mikla trú á að framtíðin hjá mér sé björt og skemmtileg.. ætla allavega að halda mig við þetta jákvæðaviðhorf sem ég er búin að tileinka mér síðustu vikur;)

jés.. æji ég hef eiginlega ekkert að segja..leiðist bara eitthvað svo hérna á Akureyri.. kannski að ég reyni að skella mér í ljós eða sund eða eitthvað það er alveg 15 sitga hiti.. samt skemmtilegra ef maður hefur éinhvern félagsskap! allir sem ég þekki -> komá AK!! gogogo! mátti reyna8)

en já ég hef ekkert að segja.. sorglegt.

ætla horfa á uppáhaldsmyndina mína.. "the sisterhood of the traveling pants" elska allt við hana.. mæli með henni.. flott lög í henni..

hm kommentið eitthvað..bara til þess að kommenta:( tjír mí öpp!

GLEÐILEGT SUMAR!

ég og Sigrún sætasta:D

besti kjóllinn:D hehe

 

GUÐRÚN LÍSA IS OUT

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 12:37:28 / glisa

nice how much??

jæja þakka fyrir góðar undirtektir og kommentin í síðasta bloggi! alltaf gaman að rabba saman um daginn og veginn... og því fleiri sem vilja leggja orð í belg, því betra!:) en munum þetta orðtak. "elskið friðinn og strjúkið kviðinn" ;)

-nóg um það.

söngvakeppni framhaldsskólana á morgun og svo ball með pál óskari og Buff eftir það! held þetta verði stuð.. æ ken fíl it in mæ bóns!! er reyndar ekki búin að gera það upp við mig hvort ég eigi að hvetja FSH eða VMA !! hvað finnst ykkur? bæði bara:) atriðið frá VMA er geðveikt.. rosalega flottur söngur.;) og náttúrulega mjög flott frá FSH lika! frumsamið sem er ekkert nema jákvætt..

enívei..

ég ætla setja inn svona smá um afmælisdaginn minn sem stendur í afmælisdagabókinni minni! hef alltaf haft gaman að því að spá í stjörnuspeki og slíku.. og ef ykkur langar að vita um ykkar dag skal ég skrifa í kommentin um hann ;p djöst if jú læk! ég hef gaman að þessu ;)

 

27.desember

litur: rauður tölur: 9, 45, 90 Steinn: eldópall - steinn brennandi ástríðna Jurt: afrískur fagurfífill dýr: hundur starf: íþróttamaður, sjálfstæður atvinnurekandi, sjúkraliði sérkenni: atorka, trúfesta, kreddufesta snillingur í: að gefast aldrei upp

  • Persónuleiki: Þú ert sterkur,þróttmikill og lítið eitt grófgerður en með hjarta úr gulli. Þótt þú getir verið þrjóskur og þver hefurðu meira yndi af að gefa en þiggja. Þú ert einnig heilmikil hetja og hikar ekki við að aðstoða fólk í hremmingum.
  • Lífsbrautin: Þú þarft að gæta þess að vera nægilega á ferðinni því hinn öflugi mars stjórnar fæðingardegi þínum. Sú staðreynd færir þér spennandi ævintýri en ríkjandi pláneta plánetan, Satúrnus, er íhaldssamari svo að stundum finnst þér eins og togað sé í þig úr tveimur áttum. Því ekki að stökkva út í djúpu laugina? varfærni hentar þér engan veginn.
  • Ástin: Þú ert gríðarlega ástríðufullur en stundum svolítið latur. Þú þarft að kynna þér unaðssemdir ástarlífsins. Mikilvægt er að þú gefir þér góðan góðan tíma og njótir augnabliksins. skimaðu eftir Hrúti en honum er einnig stjórnað af hinum kraftmikla Mars.
  • Óskagjöfin: Leðurstígvél, kúrekahattur.
  • Sami afmælisdagur: Louis Pasteur vísindamaður (1822), Marlene Dietrich söng- og leikkona (1901), Linda Pétursdóttir fyrrverandi ungfrú alheimur (1969)
  • Þetta gerðist: Árið 1948 var Alþjóðabankinn stofnsettur með samþykki og undirritun 28 þjóða.

já þar hafið þið það hehe.. afar áhugavert ..æ nó ;) en hvað segiði um að kvitta ..bara svona í tilefni þess að það er föstudagurinn þrettándi!! happadagurinn minn ;) óhappadagur einhverra!hvað er hann hjá þér ??

ok elskurnar, hafiði það gott um helgina! og gangið hægt um gleðinnar dyr.

Guðrún Lísa has spoken.8)


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 21:15:14 / glisa

Páskagleði:)

jæja þá eru páskarnir gengnir yfir.. alltaf jafn gaman á páskum:D ég og sigrún skelltum okkur í langferð suður! lögðum af stað um hádegi og vorum einmitt um 6-7 tima eða eitthvað bara frá Akureyri..hehe.. leituðum í gríð og erg af eyðibýli á leiðinni og stoppuðum svo og tókum fallegar myndir.. þó misfallegar ;) hehe.. en þessi Reykjavikurferð var snilld.. nr. 1,2 og 3 var náttúrulega best að hitta mömmu og Birtu..og bara fjölskylduna!! svo kiktum við á kaffihús, í bæinn... og á djammið einusinni.. ;) já og ég fór í 2 fermingaveislur..sem var mjög fínt ! svo lögðum við af stað síðasta miðvikud. um hádegi í blíðskaparveðri og vorum komnar til Hú um 8 leytið.. ! sko við stoppuðum einusinni á leiðinni því að við fundum eyðibýly sem var svo bara eyðihlaða!! og það var eitt svo ógeðslegt!!! það voru fullt af folaldahausum i haug við hliðina á þessari hlöðu 8|:( ógeðslegt.. mer leið sko illa i marga daga eftir að hafa litið þennan hrylling augum!

en já..allavega.. ég sá lika dáldið eftir að hafa ekki bara verið fyrir sunnan yfir páskana.. það sökkar svo að vera hérna á Hú stundum.. !! ótrúlegt..

hey verð að segja eitt.

"ég set mínar reglur á mínum vinnustað"

uu..en ef reglurnar eru ólöglegar ?

ok.. segjum ef 17 ára stelpa á 18 ári er að reyna að komast inn á einhvern bar/skemmtistað.. og fyrst er henni hleypt inn og allt í key.. vegna þess að það eru einmitt fleiri undir lögaldri þarna inni og meirað segja allt starfsfólkið á barnum (sem er er 17 og er einmitt að afgreiða vínveitingar) .. svo allt í einu er stelpan rekin út.. og einhver fer að tala við lögregluna sem hunsar þetta!! heimskar löggur..frekar. svo fer einhver og talar við eigandann og það eina sem sá aðili gat sagt var "ég set bara minar reglur á minum vinnustað" ok.. þessar reglur eru i fyrsta lagi ÓLÖGLEGAR ..og það er til hugtak sem hljóðar svo "eitt verður bara yfir alla að ganga" t.d. fer enginn að gefa 15 ára barni bílpróf?? ekki ef það er í lögum að 17 ára er bílrpófsaldur..

heimskt

allavega.. þetta liggur mer á hjarta.. ég vil jafnrétti!! huh..

og svo eitt enn.. hallærislegt að klaga einhvern sem er inni og er ekki kominn með aldur hvað þá ef klagarinn sjálfur er ekki kominn með aldur heldur!!! var vör við eitthvað af því um daginn.. serstaklega ef maður klagar vin sinn eða eitthvað..hehe.. það er sorglegt..

allavega verð ég ógeðslega pirruð á að hugsa um þetta! ég skil alveg 100% afhverju krakkar undir lögaldri eru reknir út!!! eeen.. það sem ég skil ekki er að afhverju SUMIR mega vera inni sem eru undir lögaldri en sumir ekki.. það finnst mer bara ekki réttlátt. eitt verður yfir alla að ganga.

en ég ætla fara spila trivial ;) rúlla því upp8)

komments svítípæs and gæs takk!

koma nokkrar myndir;P

snobbað!

Russian-style ;-)

ein aðeins eldri.. ég er ekki að pósa..er bara svona hrikalega töff!8)

þessi er enn eldri.. eða síðan í Janúar:haha:

ég og Linda!! bringing sexy back!! hehe

elskelsk


» 19 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 21:02:42 / glisa

VEIII VEII

Ég er komin með bílpróf loksins!!!

:haha::haha::haha::haha::haha:


» 22 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 01:11:33 / glisa

Betra er að fara í bíó en í taugarnar á fólki.

satt.. (vil einnig benda á fleiri málshætti sem slíka hér fyrir neðan) einstaklega fróðlegt lesefni.

já .. ég hef ákveðið að taka mig saman í andlitinu..eða whatever hvað maður segir og skella inn bloggi aftur!! það hlítur að vera met af minni hálfu að blogga tvisvar í sama mánuðinum!!!

dulleg deppa.

hef samt ekkert að segja..hehe..leiðinlegt.

hvað finnst ykkur um menn/konur í einkennisbúningum??

bara svona pæla!!

já í sambandi við myndirnar.. þær eru að síga inn svona hvað af hverju:haha: veit að fólk er farið að iða í skinninu af spenningi yfir þessu.. enda ekki liðin nema 7 ár síðan ég sagðist ætla setja þær inn.. en þegar maður er vinsæll og fólk þarfnast manns úr öllum áttum þá verður maður að forgangsraða8)

grín.

en já.. allt gott að frétta annars..fór til Hú síðustu helgi.. ég held að þetta hafi verið 2 leiðinlegustu dagar lífs míns!! ég leyfi mér að fullyrða það!! ég gerði ekki neitt.. fór svo heim með rútunnu á mánudagsmorgun og var frekar pírípú..en það kemur helgi eftir þessa helgi!! efast samt um að hún verði eitthvað skárri.. lalala.. bjartsýni.is Guðrún góðann daginn!!

hey ég fer í bílprófið á mánud. alveg blísperrt!! bara svona láta ykkur vita.. ykkur sem er umhugað um mig:) ég er að brillera í akstrinum..var einmitt að læra bakka i fyrsta skipti í gær!!!

-hold your horses-

kallinn sagði að ég bakkaði líkt og ég hafi aldrei gert annað! 8).. kannski er það málið fyrir mig?? að bakka bara.. ég virðist ekki vera ná áfram-keyrslunni eins vel..hehe ojújú og seisei.

en ég ætlaði bara láta aðdáendur mína vita af mér!! hehe.. :haha:

síjú aránd..stei blekk.

vá hottís

álfur.

 ps.ætlaði að segja að uppáhaldslagið mitt er Mr. Jesus með fóstbræðrum .. gríðarega fyndið.. ættuð að skammast ykkar ef þið hafið ekki heyrt það..en allavega hér kemur textinn:)

Mr. Jesus
May I invite you to a party here in London?
With lots of birds which I'm sure you would be found of
Mr. Jesus

Would you like some lemonade??
Or would you like som After-Eight??
Would you like a cup of tea??
Or would you rather watch TV, Mr. Jesuuuuuuus.

ok.bæ


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 20:23:30 / glisa

þúúúú ég vil vera eins og þúúú

jess beibíkeiks8)

ég skal þá blogga!! ok ok. fagnaðarlátunum ætlar ekki að linna!!! hehe..

allt gott að frétta. ég er búin að vera gríðarlega upptekin .... ok.. nú er ég aðeins að ýkja...

Geðveikt ball síðustu helgi!!! stelpurnar komu til mín á Eyrina.. ég Sigrún og Linda elduðum kjúklingabringur ógeðslega góðar..og gott salat!! tókum einmitt upp skemmtilegt fræðslumyndband meðan við vorum að fylla kjúlla bringurnar8) Rachel Ray kemst ekki með tærnar þar sem við höfum hælana í eldamennsku!! svo meðan kjúllinn var að eldast æfðum við okkur í þrístökki hérna heima.... Sigrún vann!!! svo seinna komu Gulla,Hanna,Berglind og Karo ! og við dönsuðum og hlógum og tókum myndir ;) kunnum sko að skemmta okkur!!! .. eins og sjá má á myndunum sem koma inn núna að vörmu spori.(girls hættiði að stela öllum myndunum minum svo!!!!!!!!!!¨hehe já svo eftir það var haldið á ball með kærastanum mínum Jónsa í svörtum fötum... hann einmitt smellti kossi á mig og horfði í augun á mér og söng til mín þarna á ballinu..rómantískt!!! ok..játning: kossinn var reyndar bara á ennið.. en þarf það að fylgja sögunni??? (",) neinei

samt eitt fyndið..ég og 3 aðrar mættum á ballið sem er btw vímulaust og þessar 3 voru búnar að drekka og ekki ég.. og ég var sú eina sem var látin blása! hehe.. heppnar..ég hlýt að hafa litið út eins og róni eða eitthvað.. það fyrsta sem var sagt við mig: "þú ert blindfull" blástu.

múhaha:klikk: góð saga. fær pottþétt nóbelsverðlaunin.. (",) eru það ekki bókaverðlaun! guuuð ég man það ekki.

-bílpróf aaalveg að koma. ef þið voruð að velta því fyrir ykkur. hehe.. ég er búin að skána aðeins í akstrinum.. þótt ég fái annarsslagið svona komment: "þú verður nú að halda þig inná veginum" eða: "ætlarðu að sleppa þessari?" (þá er verið að meina holur..) keyri alltaf ofaní allar holur. fokk it. meeen.

 vóó..svöl8)

En ég ætlaði bara skella hér nokkrum skitnum línum niður.. bara til þess að láta vita að ég sé ennþá með lífsmarki.

og ætlaði einnig að koma einni kvörtun á framfæri. það er varðandi þjónustulund í afgreiðslufólki á AKUREYRI ..þoli það ekki.. einmitt um daginn ætlaði ég í sakleysi mínu að fjárfesta í einni ostaslaufu og kókmjólk og bað konuna um að hita ostaslaufuna en hún bara "hún er heit, var að koma úr ofninum" ég bara "já en viltu hita hana meira!!" þá sagði hun ekki neitt heldur tók diskinn af mér og henti honum inní örbylgjuofn og svo i mig aftur það bara lak af henni ósvífnin! heh

æ dónt læk it.

fólk sem vinnur við þjónustustörf þarf að læra almenna kurteisi og læra að koma vel fram við kúnnana..annars getur það bara unnið einnhverstaðar bakvið tjöldin.

herðu já.. búin með kvörtun dagsins.

elska ykkur. músímús. kommentið handa mér.. ég á það skilið eftir allt erfiðið!

klárlega sætastar.

ég og Karo !!

var ég ekki bara pínukrútt með krullurnar mínar???

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 16:47:04 / glisa

vei vei

 

Nýjar myndir komnar inn frá árshátíð FSH !!!;)

undir:

*aðal myndirnar*

skoðið!!

kommentiði nú svo um hvað ykkur finnst.

ætla að bæta hérna einu inní sem er svoo satt!! endilega lesið..

 

það sem gleður hjartað:

1. Að verða ástfanginn.

2. Að hlæja svo mikið að maður fái verk í magann.

3. Heitt bað.

4. Engin röð í búðinni.

5. Sérstakt augnatillit

6. Að fá tölvupóst.

7. Að keyra um fallegan veg.

8. Að heyra uppáhaldslagið þitt í útvarpinu.

9. Að liggja í rúminu og hlusta á rigninguna fyrir utan.

10. Heit handklæði sem eru nýkomin úr þurrkaranum.

11. Að finna peysuna sem þig langar í á útsölu.

12. Súkkulaðisjeik (eða karmellu eða jarðarberja...)

13. Símtal við vin, sem endist klukkutímunum saman.

14. Freyðibað.

15. Að hnerra.

16. Gott samtal.

17. Ströndin.

18. Að finna 500 kall í gömlum jakka.

19. Að hlæja að sjálfum sér.

20. Miðnætursímtal frá góðum vin sem varir alla nóttina.

21. Að hlaupa í gegnum vatnsúða.

22. Að hlæja af engri sérstakri ástæðu.

23. Að láta einhver segja þér að þú sért falleg(ur)

24. Að hlæja aftur að gömlum brandara.

25. Vinir.

26. Að heyra fyrir tilviljun einhvern segja eitthvað fallegt um þig.

27. Að vakna og fatta að þú mátt sofa lengur.

28. Fyrsti kossinn.

29. Að eignast nýjan vin.

30. Að leika sér með gæludýrinu þínu.

31. Að láta einhvern fikta í hárinu á þér.

32. Góðir draumar.

33. Heitt kakó.

34. Bíltúr með góðum vinum.

35. Göngutúr.

36. Að pakka inn gjöfum og setja þær undir jólatréð.

37. Að syngja mjög hátt þegar þú ert aleinn.

38. Að fara á góða tónleika.

39. Að ná augnsambandi við einhvern sem þér þykir vænt um.

40. Að vinna erfitt spil.

41. Að baka smákökur.

42. Þegar vinur þinn sendir þér heimabakaðar kökur.

43. Að vera með vinum þínum.

44. Að sjá vini þína brosa og hlæja.

45. Að halda í hendina á þeim sem þú elskar.

46. Að hitta gamlan vin og sjá að sumir hlutir breytast aldrei.

47. Að sjá svipinn á einhverjum þegar hann opnar langþráða gjöf frá þér.

48. Að horfa á sólarupprásina.

49. Að fara á fætur hvern dag og vera þakklátur fyrir enn einn fallegan dag.


» 14 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 23:08:26 / glisa

jidúddamía.. er kominn mánuður..

bloggletingi..

það er rétta nafnið á mig.. takk sólveig.. þú komst alveg með rétta nafnið;) en það er alltaf hægt að bæta fyrir það,.. jújú ég held það. verð að viðurkenna það góðfúslega að ég hef ekkert verið að fara inn á bloggsíður síðustu vikur.. og ekki kommentað.. afsakið:$ ég biðst forláts..hehe

margt búið að gerast hjá mér.. mjög margt. náði bílprófinu.. abbababb .. bara þessu bóklega samt.. fékk ekki það bessaleyfi að spreyta mig á hinu.. ég hef víst lagt það fyrir mig í ökutímum að keyra yfir umferðareyjur, gangstéttir, hringtorgs-kanta (er það til?) og já.. bara name it. hef ekki enn keyrt niður manneskju eða dýr.. guði sé lof. þetta er víst ekki alveg allra.. að vera góður bílstjóri.. en með því að hafa næga trú sjálfri sér og æfa sig er allt hægt.. held ég hafi nýlega uppgötvað það! :) ég fæ eina fjöður í hattinn fyrir það.. er það ekki.. ojújú..

seisei já, seisei já svei mér þá..

svo var það söngvakeppni VMA um daginn skellti mér þangað .. ótrúlega skemmtilegt.. og flott!! greinilega mikið lagt á sig fyrir að gera þessa keppni flotta.. rosalega flott atriði sem vann.. held ég geti leyft mer að segja það að þetta hafi verið einn besti söngvari sem ég hef heyrt í bara..

jiii.... (á innsoginu) :lol:

svo er það árshátíð á föstudaginn hjá framhaldskólanum á Húsavík FSH:D .. oh það verður gaman.. elska vera fín.. ætla vera í ótrúlega flottum kjól ..ég verð eins og krúttlegt lítið Kíví :)júll síí..já er líka að fara i 4 daga frí .. nananabúbú.. það verður næs.. ætla sofa mikið.. svo ég þurfi ekki að sofa alltaf í öllum kennslustundum.. hehe.. skil þetta ekki .. ætli ég þjáist af síþreytu ? ? ? nei.. málið er það að ég er svo mikill nátthrafn.. svona um kvöldmataleytið kemst ég í gang og fer að gera eitthvað.. laga til husta á tónlist eða whatever.. en ekk iget ég gert þetta á daginn .. ég sofna lika kl. svona 2 á nóttunni.. og sef í skólanum .. hehe.. ömbelívebol..

þreytan að buga kellinguna..hehe.. djók..

æji ég nenni varla blogga meira..þá nennir enginn að lesa.. svona ofvaxið blogg.. ætli bara setja þetta í svona skammta!! hvernig hljómar það ? ;)

ætla samt að segja ykkur frá æðislegri síðu .. hún er í eign skemmtilegustu og sætustu stelpu í heimi.. sem heitir Birta Júlía.. www.blog.central.is/popstjarna skoðiði hjá henni og kvittið í gestó.. hún er með frábærar pælingar.. snillingur !! enda systir mín. ;)

jæja enda þetta á myndum..þætti vænt um að fá eitt til tvö komment.. til að hvetja mig áfram i bloggheiminum! ! ! go go go

er þetta ekki bara krúttlegt ? ?

eða þetta ?? hehe.. golden moment

Guðrún Lísa og Linda Þuríður.. þokkalegar skvísur;-)

ég og Sólveig frænka.. algerar krúslur!!

ehh.. ok.bæ

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 18:48:00 / glisa

Palli kötturinn hennar Elísubetar er svo sætur:)

-jæja ég hugsa að það sé kominn tími á blogg á þessu heimili;)-

veit reyndar ekkert hvar ég á að byrja .. það er svoo margt sem ég er búin að gera síðan 20.desember ! hehe..

Byrja á Kanarí-ferðinni! hún var fullkomin í alla staði ! besti tími lífs mins :) ég og Ásrún klikkuðum sko ekki á næturlífinu;) kynntumst helling af fólki .. samt oftast bara svona one night-....kynni ;P hehe..þarna gabbaði ég ykkur.. þið hélduð að ég væri að fara segja one night stand er það ekki ? ? ? óneii..sóðakettir.. hvernig hugsið þið ?

en já.. ég get ekki lýst þessari ferð öðruvísi en bara Fullkomin!!! set myndir inn bara sem fyrst..var buin að gera tvær tilraunir til þess en það kom einhver error! en það þýðir ekkert að gefast upp þó móti blási ! aumingjar geta farið út!!!

kreisíness8|

-cat, im a kitty cat and i dance dance dance and I dance dance dance:) frábært myndband:haha:

hey jáá..svo er ég að fara fá bílpróf bráðum :haha:looksins! næstu viku..vonandi! hver vill koma á rúntinn ???

pottþétt allir8)

herðu svo var geggjað stelpu-matarboðs-partý um helgina..stuð:haha: tópasi og rauðvíni fylgir stuð ..skilst mer maturinn var líka góður.. ítalskur..s.s.pasta,sallat,rauðvín og smábrauð..mm..og eftirréttur..marens,snickers og jarðaber og rjómi í mauki:D

-fullt af skemmtilegum myndum af því undir nafninu *aðal-myndirnar*

-skoðið-endilega-

og heyy eitt enn! ég og stelpurnar erum með flotta síðu saman;) skoðið hana..(ha hana??ekki hænu)

www.blog.central.is/hefnibandalagid

ætla horfa á Melrose eða restina af því ;)

rita meira seinna ..

myndir:

Linda,ég og Hanna

Linda,ég og Hanna hálf ;)

Hanna, Linda og Sigrún sætulínur

Hanna,Linda og Sigrún sætulínur:)

jan?007 035

sætt

haha

haha ..spees

haha sexy..

við að snæða ljúffeng jarðaber:D

jan?007 084

dansi dans

 

skoðið svo restina ;*

 

Love-


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 14:50:38 / glisa

Kanaríeyjar here i come ;p

jæja þá er komið að kveðjustund i bili, er að fara bregða landi undir fót og skella mér í næstu þotu kl hálf 9 í kvöld til Kanarí.. yfir jólin, áramótin! og já svo ekki sé minnst á afmælið mitt:lol: sem er btw 27.desember en þið vissuð það öll;) er það ekki annars? hehe.. þá verð ég einmitt 17 ára snáta!! loksins !! ..veit að þetta er 'so last year' hjá ykkur stelpur;p en eg nýt þess bara að vera sweet sixteen í eina viku enn.. herðu og já svo býst ég við mörgum fallegum kveðjum hingað á þeim merka degi !!:) takk

-ég veit alveg hvað er í gangi í þínu fallega heilabúi.
(heyrði þessa góðu línu í glæstum um daginn og ég fór í kollhnís af hlátri:lol::haha: sýnir svolitið hvað íslendingar þýða enskuna stundum fáránlega..hehe) lalala....

er búin að vera hjá mömmu og Birtu núna í viku! búið að vera yndislegt! gott að eiga góða:) á sko eftir að sakna þeirra um jólin:* en það koma jól eftir þessi jól, vonandi, ef allt verður ekki farið til fjandans:) spillti heimur:) hehe nei djók..geðveikt "jákvæð" en eg á samt eftir að sakna þess að vera ekki með þeim í kósý stemningu..mjög..

-náði næææstum öllum prófunum! ég meina.. hver þarf að læra náttúrufræði? pff..

en núna ætla eg að segja þetta gott af bulli í bili!! þýðir ekkert að gráta Björn nei eg meina Guðrúnu bónda 8)
kem aftur 3.jan.. hlakka til að hitta alla þá í jólaskapi ennþá:)

Megi guð gefa ykkur og fjölsklydum ykkar gleðileg jól og farsælt komandi ár! takk fyrir það sem er að líða..

Guðrún Lísa Harðardóttir







» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9